jólagjafir:
skór, eyrnalokkar og svona pakki með ilmvatni, body lotioni og shower geli frá Óskari... ;*
kókópuffs og jólaöl frá Védísi..
íþróttatoppur, íþróttabolur og Nýjasta Harry Potter bókin frá foreldrum mínum...
vettlinga og húfu sem ég valdi sjálf frá Bjarka bróa...
peysu, inniskó, body lotion og body spray frá foreldrum Óskars...
skartgripasett og 3000 kr. frá Erlu og Ragga...
gg cool náttföt, skartgripi og styttu frá Erlu Maríu...
froðu og andlitssprey or sumething frá Halla og fjölskyldu...
Strákarnir með strípurnar (bók) frá Diddu og fjölskyldu...
ilmvatn og shower gel frá Önnu og fjölskyldu..
húfuprjóna í íslenska þjóðbúningin frá ömmu...
olíuliti, striga og alls konar málingadót frá móðurættinni...
og þá held ég að það allt sé upptalið...
fór í nokkur jólaboð hjá minni ætt og Óskars... mörg eftirminnileg atriði sem ég ætla ekki að segja frá... en þeir sem voru vitni af þessum vandræðalegu momentum geta hlegið af þeim núna... 
fór til Reykjavíkur á jarðaför hjá Ásu frænku... það var kalt úti og nokkrar tær frusu og ef þær hefðu verið aðeins lengur úti þá hefðu brotnað af.... svo fór ég með Þóhildi í bíó á Sydney White sem er algjör gelgu mynd... fullt af einhverjum smá píkum með sinn gelgjulegahlátur.. svo kláraði ég Harry Potter bókina fyrir sunnan og hún endaði geðveikt happy.. svo fór ég að keppa og ég er ömurleg í þessu veit ekki hvort ég nenni þessu lengur... fékk samt gull og silfur en bara af því það voru svo fáir að keppa...
brann ekki á rassinum í ljósi í gær...!! hélt það samt í gær því hann var eldrauður en það lagaðist yfir nóttina... svo svaf ég út í morgun og ég hef örugglega aldrei sofið til 1... well man ekki eftir neinu fleira áhugaverðu en ég er að fara til Óskars svo g2g... 